iRobot Roomba 630 ryksuguvélmennið:
Þessi gerð er þeim eiginleikum gædd að hún er afar einföld í notkun og fer í gang með einni aðgerð. Ryksugan er með einum vegg sem sendir infra-rauða geisla og með honum er því hægt að afmarkað það svæði sem hún á að ryksuga hverju sinni. Hann kveikir á sér þegar vélin fer af stað. Vélin kemur með hleðslustöð sem hún leitar í aftur að verki loknu eða þegar batteríshleðslan er að klárast. Vélin getur þrifið allt að 100fm2 gólfflöt á einni hleðslu. Hún greinir skítuga bletti og fer aftur yfir þann stað sem er skítugri en annar. Hún getur tilgreint með hljóði hvað amar að á ensku, og fleiri tungumálum en þó ekki á íslensku. Hún er með stuðara að framan til að taka högg af þegar hún rekst á hindranir. iRobot 630 er svört og grá að lit. iRobot 630 og 650 eru með nýrri og betri AeroVac skúffu, burstagrind og burstum sem henta gæludýraeigendum mjög vel. Vélin er 34 cm í ummál og 9,2 cm á hæð.
iRobot Roomba 650 ryksuguvélmennið:
Þessi gerð er þeim eiginleikum gædd að hafa sömu grunneiginleika og 630 gerðin. Aðalmunurinn á gerðunum liggur í því að 650 vélina er hægt að tímastilla og þannig forrita til að ryksuga á fyrirfram ákveðnum tímum. Hún er einnig gerð fyrir fjarstýringu til að stjórna aðgerðum hennar (fylgir ekki með). Hún getur þrifið allt að 100fm2 gólfflöt á einni hleðslu. iRobot 650 er svört að lit. Vélin er 34 cm í ummál og 9,2 cm á hæð. iRobot 630 og 650 eru með nýrri og betri AeroVac skúffu, ný burstagrind með burstum sem henta gæludýraeiginum mjög vel.
iRobot Roomba 770 ryksuguvélmennið:
Þessi gerð er framleidd fyrir þá sem eru með heimilisdýr á sínum heimilum og er þeim eiginleikum gædd að hafa sömu grunneiginleika og 630 og 650 gerðin en þess utan kemur 770 aftur á móti með einum vegg sem sendir infra-rauðan geisla og það er því hægt að afmarkað það svæði sem hún á að ryksuga hverju sinni. Hann kveikir á sér þegar vélin fer af stað. iRobot 770 hefur 50% lengri vinnutíma en fyrri kynslóðir (500 línan). Með 700 línuni kemur ný AreoVac™ series 2 skúffa með Dual Hepa fylterum og ný burstagrind með burstum sem henta gæludýraeigendum mjög vel.. Hún er gerð fyrir fjarstýringu til að stjórna aðgerðum hennar (fylgir með). Hún getur þrifið allt að 120fm2 gólfflöt á einni hleðslu, full endurhleðsla tekur allt að þrjá klukkutíma. iRobot 770 er svört og grá að lit. iRobot 700 vélarnar eru 35,3 cm í ummál og 9,1 cm á hæð.
iRobot Roomba 780 ryksuguvélmennið:
Þessi gerð er þeim eiginleikum gædd að hafa sömu grunneiginleika og 770 gerðin. Aðalmunurinn á gerðunum liggur í því að 780 vélin kemur með tveimur Veggjum og vitum til að skipta svæðinu þannig að þá tekur hún herbergi eftir herbergi eða hún skiptir svæðinu í þrjú svipuð svæði, Hún getur þrifið allt að 140fm2 gólfflöt á einni hleðslu, full endurhleðsla tekur allt að þrjá klukkutíma. iRobot 780 er svört að lit og er með snerti skjá fyrir aðgerðir, lætur vita með ljósi þegar skúffa er full. Með iRobot 780 fylgir aukasett af öllum burstum,fjarstýring til að stjórna aðgerðum hennar og auka fylterar. iRobot 700 vélarnar eru 35,3 cm í ummál og 9,1 cm á hæð.







