Umsagnir

Umsögn

Ég fell alltaf kylliflöt fyrir spennandi nýjungum; sér í lagi hrífst ég af nýjum tæknilausnum sem virka og leysa vandamál og verkefni á algjörlega nýjan hátt. Þannig heillaðist ég af ryksuguróbótinum Roombu sem varð á fyrsta degi ómissandi samstarfsaðili í heimilisþrifum heima hjá mér og við biðum spenntar eftir skúringaróbóti til að fullkomna gólfþrifin. Þær systur iRobot Roomba og Scooba eru elskaðir heimilismeðlimir og þessar græjur eru einfaldlega að virka langt umfram mínar björtustu vonir.

Þær systur annast algjörlega sjálfvirka gólfhreinsun þannig að öll gólf eru skínandi hrein og rykmagn í andrúmsloftinu er margfalt minna. Sá bónus hefur komið sér frábærlega því nú dugar að þurrka af margfalt sjaldnar en áður. Við getum ekki lifað án þeirra og hlökkum mikið til að fá líka slátturóbótinn í fjölskylduna til að sjá um garðsláttinn :)

Sjálfvirk gólfþrif er einfaldlega mesta bylting í heimilishaldi síðan sjálfvirku þvottavélarnar komu til sögunnar. Til hvers að þvo á bretti ef sjálfvirk þvottavél er í boði og til hvers að liggja í gólfunum og skólpa með gólftuskunni eða handryksuga með tilheyrandi bakverjum ef tæknin getur leyst málið á fullkominn hátt?


Margrét Pála Ólafsdóttir
Hjallastefnan

8656310 - Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

 

Dýralækningaþjónustan  SisVet

Nýja "skrúbban" (scooba) mín er bara tær snilld. Hún þrífur rosa vel, er einföld í notkun og kvartar ekki. Ég fékk mér rombu í sumar (ryksuguvélin) og hún er líka algjör snilld. Nú þarf ég ekki lengur að stressa mig á að þrífa húsið, set bara "vinkonurnar" í gang og fæ mér kaffibolla í rólegheitunum. Nú bíð ég bara eftir "maskínunni" sem hengir upp þvottinn minn og tekur úr uppþvottarvélinni!
Kær kveðja.
Sigríður Inga

 


iRobot Roomba 530 , 560 , 580 og Scooba 385. svona er talað um þessa hreinustu snilld.

1. Hefur iRobot vélin staðist væntingar þínar?

Já og mikið meira en það.

2. Hverja telur þú vera helstu kosti iRobot vélarinnar?

Mikill tímasparnaður og mun betra loft ásamt því að gólfin hjá okkur eru alltaf hrein án nokkrar fyrirhafnar. Vélarnar þrífa líka undir þeim stöðum sem erfitt er að ná til svo að við erum alltaf viss um að öll gólfin séu hrein.

3. Myndir þú ráðleggja öðrum að fá sér iRobot ryksugu- eða skúringarvélmenni?

Alveg tvímælalaust og við höfum oftar en einu sinni gert það. 

4. Annað sem þú vilt koma á framfæri.

Við höfum átt ryksuguvélmennið í þrjú ár og bættum nýju týpunni við í fyrra, skúringarvélina erum við búin að eiga í fjóra mánuði. Við notum báðar vélarnar nær undantekningarlaust á hverjum degi og höfum það fyrir reglu að setja þær alltaf af stað áður en við förum út. Afraksturinn er sá að gólfin á heimilinu eru alltaf tandurhrein, ásamt því að loftið í íbúðinni er alltaf ferskt og gott. Við gætum ekki hugsað okkur lífið án vélanna því þær eru svo sannarlega ein sú tærasta snilld sem við höfum kynnst. 

Eva Dóra Kolbrúnardóttir

Anton I. Antonsson

 

 

 

 

Smoothie Maker

Sjá einnig undir "AÐRAR VÖRUR"

Golfvörur

Hafðu kennarann í hendi þér.

Leiðbeiningar

Sample image
Hér er hægt að nálgast leiðbeiningar fyrir iRobot í hreyfimyndum.

Roomba


Roomba ryksugan er frábær nýjung
Þeir sem hafa einast svona græju...

Scooba


Scooba skúringar græjan sem þarf að vera til á öllum heimilum.

-->

Hvar erum við?

Hvar erum við

iRobot Handbækur

Sample image

Hafðu samband

Sample image

Krossgáta lausnir

Sample image