Hvað get ég gert ef rafhlaðan virðist ekki hlaða sig?
Ef rafhlaðan hleður sig ekki, ættirðu fyrst að athuga hvort rafhlaðan sé ekki vel fest í sæti sitt í ryksugunni. Þegar rafhlaðan er sett í á hún að smella í á báðum hliðum. Þá skaltu kveikja á ryksugunni og athuga hvort græna gaumljósið kviknar ekki ofan á henni. Þegar verið er að hlaða hana með heimahöfninni, eiga tvö græn ljós á henni að loga. Ef þau loga ekki, skaltu athuga hvort rafmagnssnúrurnar séu ekki örugglega í sambandi, bæði við heimahöfnina og í rafmagnstenglinum. Ef samband fæst ekki, stingdu snúrunni þá beint í ryksuguna og sjáðu hvort kviknar á hleðsluljósi ryksugunnar. Hleðsluljósið á ryksugunni á að tifa á meðan á hleðslu stendur.
Hvað á ég að gera ef sífellt slökknar og kviknar á ryksugunni, eða hún snýst á sama stað?
Ef ryksugan slekkur og kveikir á sér í sífellu, eða hún snýst á sama stað, gæti fallskynjarinn verið óhreinn. Þurrkaðu af skynjurunum með þurrum klút eða eyrnapinna. Athugaðu einnig hvort burstarnir eða legurnar þarfnist hreinsunar.
Hvað get ég gert ef ryksugan vinnur lengur en ég vil í ákveðnu herbergi?
Roomba-ryksugan reiknar sjálf út stærð herbergisins og vinnutíminn miðast við það. Hún er lengur að þrífa ef mikið er um óhreinindi og húsgögn. Einnig er hún aðeins lengur þar sem teppi og mottur eru. Ryksugan er um 20 mín. að þrífa tómt 8 fermetra herbergi með hörðu gólfi. Ef þú fjarlægir hindranir, eins og borð, stóla og lampa, styttirðu þriftímann í herberginu.
Hvað get ég gert til að koma ryksugunni í heimahöfnina?
Heimahöfnin sendir frá sér innrautt ljós, sem ryksugan skynjar og skilar sér því heim á ný. Heimahöfnin þarf að vera í sambandi, gaumljósið logar þá og hún þarf að vera á gólfinu, sem næst miðju herberginu, ef hægt er. Notið sýndarveggina ekki nærri heimahöfninni, því það gæti ruglað ryksuguna. Ef húsnæðið er mjög stórt, gæti verið erfiðara fyrir ryksuguna að finna heimahöfnina aftur að loknum þrifum. Ef það gerist er ráðlegt að færa heimahöfnina.







